Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 02. nóvember 2020 20:30
Aksentije Milisic
Pochettino spenntur: Klár í að snúa aftur
Mynd: Getty Images
Mauricio Pochettino, fyrrverandi stjóri Tottenham, segist vera tilbúinn til þess að snúa aftur í þjálfun.

Nú er næstum ár síðan hann var rekinn frá Tottenham þar sem hann náði frábærum árangri með liðið. Hann er gestur í Monday Night Football á Sky Sports í kvöld og þar segir hann að hann sakni þess að vera þjálfari.

„Ég er alltaf tilbúinn í að snúa aftur. Ég elska fótbolta. Þetta er ástríðan mín, vinnan mín," sagði Pochettino.

„Ég er að leita að vinnu. Ég er að gera hluti en þetta er ekki það sama og fótboltinn. Vera með leikmönnunum og starfsfólkinu hvern einasta dag. Þú saknar þess, það er raunveruleikinn."

„Það er ekki stressandi þegar þú ert að vinna. Þegar þú mætir á æfingasvæðið, undirbýrð liðið og spilar."

Pochettino hefur verið orðaður við mörg lið síðan hann var rekinn frá Tottenham á síðasta ári.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner