Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 02. nóvember 2020 23:00
Aksentije Milisic
Rodgers: Spilamennska liðsins var frábær
Mynd: Getty Images
Brendan Rodgers, stjóri Leicester, var kampakátur eftir 1-4 sigur liðsins á Elland Road í kvöld.

Leicester spilaði frábærlega og vann öruggan þriggja marka sigur á Leeds sem hefur þótt spila vel á þessari leiktíð.

Jamie Vardy kom aftur inn í byrjunarlið Leicester í kvöld og hann lagði upp tvö mörk og skoraði eitt. Rodgers var himinlifandi með frammistöðun í viðtali eftir leik.

„Tæknilega vorum við frábærir. Við þurftum að loka svæðunum, Leeds er hættulegt þegar það fær svæði til að spila í. Við vorum með gæðin til að spila þegar það kom til þess," sagði Rodgers.

„Við erum með unga og hungraða leikmenn og hugafarið hjá strákunum er magnað. Við erum að bæta okkur."

„Þegar þú ert í Evrópukeppni og að spila í ensku úrvalsdeildinni þá verður þú að vera með góðan hóp. Við vissum að þetta yrði erfiður leikur."

Að lokum sagði Rodgers við Mauricio Pochettino að hann ætti að drífa sig í þjálfun aftur og að honum hlakki til að sjá hann. Pochettinho var gestur hjá Sky Sports í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner