Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 02. nóvember 2020 21:26
Aksentije Milisic
Þýskaland: Rautt spjald og fjögur mörk í sigri Union Berlin
Mynd: Getty Images
Hoffenheim 1 - 3 Union Berlin
0-1 Max Kruse ('60 , víti)
1-1 Munas Dabbur ('80 )
1-2 Joel Pohjanpalo ('85 )
1-3 Cedric Teuchert (90+5)
Rautt spjald: Robert Skov, Hoffenheim ('58)

Einn leikur var á dagskrá í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Union Berlin heimsótti þá Hoffenheim en bæði lið voru um miðja deild fyrir leikinn.

Markalaust var í hálfleik en það dró heldur betur til tíðinda í þeim síðari. Á 58. mínútu fengu gestirnir vítaspyrnu og fékk Roberto Skov rautt spjald í liði heimamanna.

Max Kruse steig á punktinn og skoraði. Tíu mínútum fyrir leikslok jafnaði Munas Dabbur metin fyrir Hoffenheim en það var Joel Pohjanpalo sem kom gestunum yfir fimm mínútum fyrir leikslok.

Cedric Teuchert rak þá síðasta naglann í kistu Hoffenheim í uppbótartíma. Góður sigur hjá Union Berlin staðreynd og er liðið í 8. sæti deildarinnar. Hoffenheim er í því tólfta.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner