Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   mið 02. nóvember 2022 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Bayern vill halda Choupo-Moting - Valinn maður leiksins í gær
Eric Maxim Choupo-Moting
Eric Maxim Choupo-Moting
Mynd: EPA
Þýska félagið Bayern München er að undirbúa samningaviðræður við kamerúnska framherjann Eric Maxim Choupo-Moting en þetta segir ítalski blaðamaðurinn Fabrizio Romano.

Saga Choupo-Moting er ekkert annað en ótrúleg og oft talað um að hann sé með besta umboðsmann veraldar.

Leikmaðurinn var á mála hjá Stoke City tímabilið 2017-2018 og gekk óvænt til liðs við Paris Saint-Germain í kjölfarið. Ekkert benti til þess að hann væri á leið í eitt af stærstu félögum heims á þeiim tímapunkti en það er ástæða fyrir öllu.

Choupo-Moting er vinsæll og afar þægilegur karakter að hafa í klefanum. Ekki nóg með það þá skilar hann yfirleitt sínu þegar hann spilar.

Framherjinn spilaði fyrir PSG í tvö ár áður en hann gekk í raðir Bayern München. Hann var varaskeifa fyrir Robert Lewandowski á síðustu leiktíð en hefur fengið stærra hlutverk á þessu tímabili.

Hann hefur í raun verið svo góður að Bayern er að undirbúa samningstilboð og eru nú taldar miklar líkur á að hann framlengi dvöl sína.

Choupo-Moting skoraði í 2-0 sigri Bayern á Inter í gær og var valinn maður leiksins annan leikinn í röð.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner