Endrick, Marcus Rashford, Kobbie Mainoo, Harvey Elliott og N'Golo Kante og fleiri koma fram í slúðurpakka dagsins.
banner
   sun 02. nóvember 2025 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Þýskaland í dag - Mikilvægur leikur fyrir Ísak og félaga
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Það eru tveir leikir á dagskrá í efstu deild þýska boltans í dag. Ísak Bergmann Jóhannesson og félagar í liði Köln taka á móti Hamburger SV í fyrri leik dagsins.

Köln og HSV eru bæði nýliðar í efstu deild eftir að hafa endað í fyrsta og öðru sæti næstefstu deildar á síðustu leiktíð.

Köln hefur farið vel af stað og er með 11 stig eftir 8 umferðir, þremur stigum meira heldur en Hamburger. Ísak er kominn með eitt mark í átta deildarleikjum auk þess að hafa skorað eitt og lagt eitt upp í tveimur bikarleikjum.

Wolfsburg spilar við Hoffenheim í seinni leik dagsins. Wolfsburg hefur ekki farið vel af stað á nýju tímabili og er aðeins með 8 stig á meðan Hoffenheim er komið með tvo sigra í röð eftir slaka byrjun.

Hoffenheim er því í efri hluta deildarinnar með 13 stig og getur fært sig nær Evrópusætunum með sigri.

Bundesliga
14:30 Köln - Hamburger
16:30 Wolfsburg - Hoffenheim
Stöðutaflan Þýskaland Bundesliga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Bayern 9 9 0 0 33 4 +29 27
2 RB Leipzig 9 7 1 1 19 10 +9 22
3 Dortmund 9 6 2 1 15 6 +9 20
4 Stuttgart 9 6 0 3 14 10 +4 18
5 Leverkusen 9 5 2 2 18 14 +4 17
6 Eintracht Frankfurt 9 4 2 3 22 19 +3 14
7 Hoffenheim 8 4 1 3 15 13 +2 13
8 Werder 9 3 3 3 13 17 -4 12
9 Köln 8 3 2 3 12 11 +1 11
10 Union Berlin 9 3 2 4 11 15 -4 11
11 Freiburg 9 2 4 3 11 13 -2 10
12 Wolfsburg 8 2 2 4 9 13 -4 8
13 Hamburger 8 2 2 4 7 11 -4 8
14 Augsburg 9 2 1 6 12 21 -9 7
15 St. Pauli 9 2 1 6 8 18 -10 7
16 Gladbach 9 1 3 5 10 18 -8 6
17 Mainz 9 1 2 6 10 17 -7 5
18 Heidenheim 9 1 2 6 8 17 -9 5
Athugasemdir
banner
banner