Juventus 2 - 0 Torino
1-0 Douglas Costa ('15)
2-0 Mario Mandzukic ('67)
1-0 Douglas Costa ('15)
2-0 Mario Mandzukic ('67)
Juventus varð í kvöld síðasta liðið til að tryggja sig í undanúrslit ítölsku bikarkeppninnar.
Juventus mætti Torino í nágrannaslag. Fyrsta markið lét sjá sig eftir stundarfjórðung og var það Brasilíumaðurinn Douglas Costa sem skoraði eftir undirbúning Paulo Dybala.
Staðan var 1-0 í hálfleik en um miðjan seinni hálfleikinn skoraði Mario Mandzukic annað markið.
Lokatölur urðu 2-0 og tiltölulega auðveldur sigur Juventus staðreynd. Juve mætir Atalanta í undanúrslitum, en Atalanta gerði sér lítið fyrir og lagði Napoli að velli í gærkvöldi.
Athugasemdir