Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 03. janúar 2018 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn í dag - Smáliðin þurfa annað afrek
Mynd: Getty Images
Fimm lið úr La Liga mæta til leiks í 16-liða úrslitum spænska Konungsbikarsins í kvöld.

Alaves heimsækir Formentera á meðan Lleida fær Atletico Madrid í heimsókn.

Bæði lið leika í spænsku 80-liða C-deildinni og komu gríðarlega á óvart þegar þau slógu Athletic Bilbao og Real Sociedad úr leik í 32-liða úrslitum.

Sevilla á svo útileik gegn Cadiz, sem er í toppbaráttu B-deildarinnar, á sama tíma og Valencia heimsækir Las Palmas, botnlið efstu deildarinnar.

Cadiz sló Real Betis úr leik með 5-3 sigri á útivelli og hafði Las Palmas betur gegn Deportivo La Coruna.

Liðin mætast öll aftur að viku liðinni.

Leikir kvöldsins:
18:00 Formentera - Alaves
18:00 Lleida - Atletico Madrid
20:00 Cadiz - Sevilla
20:00 Las Palmas - Valencia
Athugasemdir
banner
banner