Goal.com setti saman lista yfir fimmtán bestu kaupin í Evrópufótboltanum síðasta sumar. Þá er miðað við frammistöðuna hingað til á tímabilinu. Horft er til ensku úrvalsdeildarinnar, La Liga, ítölsku A-deildarinnar, þýsku Bundesligunnar og frönsku deildarinnar.
#15 Mariano - Real Madrid til Lyon: Þessi 24 ára leikmaður var fenginn til að fylla skarð Alexandre Lacazette. Hefur staðið undir þeirri pressu og gert 14 mörk í 24 leikjum.
#14 Kylian Mbappe - Mónakó til Paris Saint-Germain: Kostaði sitt en er líklegur til að verða besti leikmaður heims einn daginn. Bætir sig hrikalega ört.
#13 Neymar - Barcelona til Paris Saint-Germain: PSG er með botnlausan brunn peninga og Neymar er dýrasti leikmaður sögunnar. Næstur fyrir utan Messi og Ronaldo til að fá gullknöttinn?
#12 Josep Ilicic - Fiorentina til Atalanta: Slóvenski leikstjórnandinn (29) er þegar kominn með fleiri mörk en hann gerði á síðasta tímabili.
#11 Aleksandar Kolarov - Manchester City til Roma: Þessi 32 ára Serbi er þegar kominn í uppáhald hjá stuðningsmönnum Roma.
#10 Milan Skriniar - Sampdoria til Inter: Þessi hrikalega öflugi 22 ára Slóvaki hefur verið einn besti miðvörður Evrópufótboltans í vetur.
#9 Maximilian Philipp - Freiburg til Borussia Dortmund: Þessi 23 ára vængmaður hefur tekið miklum framförum og það reyndist snilld hjá Dortmund að krækja í hann.
#8 Matthias Ginter - Borussia Dortmund til Borussia Mönchengladbach: Þessi 23 ára hæfileikaríki varnarmaður hefur blómstrað hjá nýjum vinnuveitendum.
#7 Niklas Sule - Hoffenheim til Bayern München: Það kom ekki á óvart þegar Bæjarar keyptu þennan frábæra 22 ára varnarmann og hann hefur bætt sig enn frekar hjá liðinu.
#6 Maxi Gomez - Defensor Sporting til Celta Vigo: Þessi úrúgvæski sóknarmaður smellpassar í La Liga og er þegar kominn með sjö mörk. Aðeins tvítugur að aldri.
#5 Geoffrey Kondogbia - Inter til Valencia: Hefur sýnt sínar bestu hliðar og Frakkinn er í landsliðsformi á HM ári.
#4 Paulinho - Guangzhou Evergrande til Barcelona: Margir ráku upp stór augu þegar Barcelona fékk Paulinho sem floppaði hjá Tottenham. Hann hefur verið frábær með spænska stórliðinu og þaggað niður í efasemdarröddum.
#3 Nemanja Matic - Chelsea til Manchester United: Leikmaðurinn sem United þurfti og margir undra sig á því að Chelsea hafi látið þá fá hann!
#2 Sead Kolasinac - Schalke til Arsenal: Bosníski landsliðsmaðurinn kom á frjálsri sölu og hefur nýst Arsenal gríðarlega vel.
Athugasemdir