Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 03. janúar 2021 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
Andre Gray braut samkomureglur í annað sinn
Mynd: Getty Images
Andre Gray, sóknarmaður Watford, hefur beðist afsökunar eftir að hafa brotið samkomureglur í annað sinn á sex mánuðum.

Í júní hélt Gray afmælisteiti heima hjá sér og var refsað fyrir það. Skömmu eftir jól hélt hann svo annað teiti heima hjá sér þar sem vinir hans komu saman til að spila póker.

Upp komst um bæði teitin sem voru ólögleg og nú á Gray yfir höfði sér aðra refsingu.

Andre Gray er því búinn að skora færri mörk (1) heldur en hann hefur haldið ólögleg teiti (2) eftir að Covid braust út.

„Ég hélt smá hitting heima á laugardagskvöldið og þegar ég lít til baka þá var það ótrúlega barnalegt af mér. Ég dauðsé eftir þessari ákvörðun," sagði Gray eftir að myndband úr hittingnum fór um samfélagsmiðla.

„Ég vil biðjast innilegrar afsökunar."

Sjá einnig:
Watford rannsakar afmælisteiti Andre Gray
Þrír leikmenn aftur inn í myndina hjá Watford
Athugasemdir
banner
banner
banner