Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 03. janúar 2021 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Draumalið samningslausra er 462 milljón evra virði
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Það eru spennandi tímar framundan á leikmannamarkaðinum en gríðarlega margar stórstjörnur eiga aðeins sex mánuði eftir af samningum sínum.

Þegar sett er saman draumalið leikmanna sem renna út á samningi næsta sumar má finna gríðarlega öfluga leikmenn. Heildarvirði liðsins er 462 milljónir evra samkvæmt tölum frá vefsíðu transfermarkt.

Sergio Ramos, David Alaba og Luka Modric eru meðal leikmanna liðsins en þar má einnig finna argentínsku stórstjörnurnar Lionel Messi og Sergio Agüero.

Markvörður:
Gianluigi Donnarumma

Vörn:
Elseid Hysaj (Napoli)
Sergio Ramos (Real Madrid)
Jerome Boateng (FC Bayern)
David Alaba (FC Bayern)

Miðja:
Angel Di Maria (PSG)
Luka Modric (Real Madrid)
Georginio Wijnaldum (Liverpool)

Sókn:
Lionel Messi (Barcelona)
Sergio Agüero (Man City)
Memphis Depay (Lyon)
Athugasemdir
banner
banner