Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 03. janúar 2021 16:10
Ívan Guðjón Baldursson
England: Leicester vann nauman sigur í Newcastle
Mynd: Getty Images
Newcastle 1 - 2 Leicester
0-1 James Maddison ('55)
0-2 Youri Tielemans ('72)
1-2 Andy Carroll ('81)

Newcastle og Leicester áttust við í fyrri leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni og var staðan markalaus eftir arfaslakan fyrri hálfleik.

James Maddison skoraði snemma í síðari hálfleik eftir góðan undirbúning frá Jamie Vardy og tvöfaldaði Youri Tielemans forystuna með frábæru skoti eftir laglega fyrirgjöf frá Marc Albrighton.

Það lifnaði við leiknum eftir annað markið og átti Vardy skot í slá skömmu síðar. Heimamenn vöknuðu til lífsins og skiptu Andy Carroll inná. Það tók hann aðeins nokkrar mínútur að hafa áhrif á leikinn þegar hann skoraði með flottu skoti eftir að Leicester tókst ekki að hreinsa boltann frá marki í kjölfar aukaspyrnu.

Það var mikið fjör lokamínúturnar þar sem bæði lið gerðu sig hættuleg en inn vildi boltinn ekki. Niðurstaðan því 1-2 sigur Leicester eftir fjörugan seinni hálfleik.

Leicester fer upp í þriðja sæti með sigrinum og er þar einu stigi eftir toppliðunum sem eiga þó bæði leik til góða. Newcastle er áfram í neðri hlutanum, með 19 stig eftir 16 umferðir.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 34 24 5 5 82 26 +56 77
2 Liverpool 33 22 8 3 75 32 +43 74
3 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
4 Aston Villa 34 20 6 8 71 50 +21 66
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 34 13 9 12 54 63 -9 48
9 Chelsea 32 13 8 11 61 57 +4 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 33 12 7 14 46 53 -7 43
12 Fulham 34 12 6 16 50 54 -4 42
13 Bournemouth 33 11 9 13 48 60 -12 42
14 Crystal Palace 33 9 9 15 42 56 -14 36
15 Brentford 34 9 8 17 52 59 -7 35
16 Everton 33 10 8 15 34 48 -14 30
17 Nott. Forest 34 7 9 18 42 60 -18 26
18 Luton 34 6 7 21 47 75 -28 25
19 Burnley 34 5 8 21 37 69 -32 23
20 Sheffield Utd 33 3 7 23 31 88 -57 16
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner