Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   sun 03. janúar 2021 12:00
Ívan Guðjón Baldursson
Graziano Pellè samningslaus
Mynd: Getty Images
Ítalski sóknarmaðurinn Graziano Pellè er frjáls ferða sinna eftir að samningur hans við kínverska félagið Shandong Luneng rann út um áramótin.

Pellè gerði garðinn frægan hjá Feyenoord þar sem hann skoraði nánast í hverjum leik áður en hann var seldur til Southampton. Hann skoraði 30 mörk í 81 leik hjá Southampton áður en hann var seldur til Kína fyrir um 12 milljónir punda sumarið 2016.

Pellè gerði 61 mark í 125 leikjum á fjóru og hálfu ári í Kína og missti hann sæti sitt í ítalska landsliðinu við félagaskiptin.

Það verður áhugavert að fylgjast með næsta skrefi Pellè sem er 35 ára gamall.
Athugasemdir
banner
banner