Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   sun 03. janúar 2021 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía í dag - Búist við markaregni í Bergamó
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Það fer heil umferð fram í ítalska boltanum í dag og verða þrír leikir sýndir beint á Stöð 2 Sport 4.

Veislan hefst fyrir hádegi þegar toppbaráttulið Inter tekur á móti nýliðum Crotone í sjónvarpsleik. Inter getur tekið toppsætið af nágrönnum sínum í AC Milan með sigri, en Milan á sjónvarpsleik gegn nýliðum Benevento síðar í dag.

Atalanta og Sassuolo eigast við í hörkuleik sem hefur alla burði til þess að verða mikill markaleikur, enda tvö af skemmtilegustu liðum deildarinnar sem mætast hér.

Sassuolo hefur reynst spútnik lið fyrri hluta tímabilsins og er í fjórða sæti, fjórum stigum á undan Atalanta sem á leik til góða.

Napoli og Lazio eiga útileiki á meðan Roma tekur á móti Sampdoria áður en Milan heimsækir Benevento.

Lærisveinar Andrea Pirlo hjá Juventus ljúka kvöldinu á heimaleik gegn Udinese. Ítalíumeistararnir eru óvænt í sjötta sæti, með 24 stig eftir 13 umferðir.

Leikir dagsins:
11:30 Inter - Crotone (Stöð 2 Sport 4)
14:00 Atalanta - Sassuolo (Stöð 2 Sport 4)
14:00 Cagliari - Napoli
14:00 Fiorentina - Bologna
14:00 Genoa - Lazio
14:00 Parma - Torino
14:00 Roma - Sampdoria
14:00 Spezia - Verona
17:00 Benevento - Milan (Stöð 2 Sport 4)
19:45 Juventus - Udinese
Stöðutaflan Ítalía Serie A - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Inter 29 24 4 1 71 14 +57 76
2 Milan 29 19 5 5 55 33 +22 62
3 Juventus 29 17 8 4 44 23 +21 59
4 Bologna 29 15 9 5 42 25 +17 54
5 Roma 29 15 6 8 55 35 +20 51
6 Atalanta 28 14 5 9 51 32 +19 47
7 Napoli 29 12 9 8 44 33 +11 45
8 Fiorentina 28 12 7 9 41 32 +9 43
9 Lazio 29 13 4 12 36 33 +3 43
10 Monza 29 11 9 9 32 36 -4 42
11 Torino 29 10 11 8 28 26 +2 41
12 Genoa 29 8 10 11 31 36 -5 34
13 Lecce 29 6 10 13 26 45 -19 28
14 Udinese 29 4 15 10 28 44 -16 27
15 Verona 29 6 8 15 26 39 -13 26
16 Cagliari 29 6 8 15 29 50 -21 26
17 Empoli 29 6 7 16 22 43 -21 25
18 Frosinone 29 6 6 17 37 60 -23 24
19 Sassuolo 29 6 5 18 33 56 -23 23
20 Salernitana 29 2 8 19 23 59 -36 14
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner