Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   sun 03. janúar 2021 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sky Sports: Real Madrid ætlar að reyna við Salah
Mynd: Getty Images
Sky Sports greindi frá því í gærkvöldi að öruggar heimildir væru fyrir því að Real Madrid væri að undirbúa tilboð í Mohamed Salah.

Salah er talinn áhugasamur um að spila fyrir Real Madrid eftir að hafa unnið allt mögulegt með Liverpool að undanskildum ensku bikarkeppnunum.

Salah er 28 ára gamall og hefur skorað 110 mörk í 175 leikjum hjá Liverpool. Hann er samningsbundinn félaginu til 2023 og er metinn á vel yfir 100 milljónir evra.

Það þarf ansi margt að ganga upp til að Real geti leyft sér þessi félagaskipti en félagið hefur einnig mikinn áhuga á Kylian Mbappe framherja PSG.
Athugasemdir
banner
banner