Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   sun 03. janúar 2021 15:52
Ívan Guðjón Baldursson
Torres með Covid - Laporte og Ake ekki í standi
Mynd: Heimasíða Man City
Manchester City heimsækir Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í dag og eru Ferran Torres, Aymeric Laporte og Nathan Ake utan hóps.

Vitað var um Covid smit í hópi Man City en nú er komið í ljós að Ferran Torres er með Covid auk Ederson og hins 19 ára gamla Tommy Doyle.

Laporte er ekki með í dag vegna meiðsla og þá er Ake ekki í standi til að spila. Eric Garcia er einnig fjarverandi vegna meiðsla og greindist auk þess með Covid.

Gabriel Jesus og Kyle Walker eru þegar fjarverandi vegna veirunnar skæðu.
Athugasemdir
banner
banner
banner