Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 03. janúar 2021 15:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sífelld vandræði - „Hlýtur að vera martröð að stýra Mendy"
Mynd: Getty Images
Benjamin Mendy kom sér í klandur þegar hann hélt partý á gamlárskvöld.

Mendy er leikmaður Manchester City og hefur félagið gefið það út að það sé með málið í rannsókn.

Sam Lee er blaðamaður The Athletic sem sérhæfir sig í málefnum Manchester City. Hann skrifaði eftirfarandi í færslu sinni á Twitter í morgun.

„Það hlýtur að vera martröð að stýra honum, hann hefur lagt hart að sér að koma til baka eftir tvö hnémeiðsli en er sífellt að koma sér í alvöru vandræði. Tími fyrir breytingar."

Mendy byrjar á varamannabekknum þegar City heimsækir Chelsea klukkan 16:30.
Athugasemdir
banner
banner