Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 03. janúar 2021 20:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Varamarkvörður Southampton í markinu gegn Liverpool
McCarthy verður ekki með Southampton á morgun. Hann er með kórónuveiruna.
McCarthy verður ekki með Southampton á morgun. Hann er með kórónuveiruna.
Mynd: Getty Images
Alex McCarthy, markvörður Southampton, verður ekki með gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni á morgun.

McCarthy greindist nýverið með kórónuveiruna og er hann núna í einangrun.

Enginn annar innan herbúða Southampton er með veiruna og því ætti leikurinn að fara fram á morgun.

McCarthy er aðalmarkvörður Southampton. Varamarkvörðurinn Fraser Forster verður í markinu gegn Englandsmeisturum Liverpool annað kvöld.

Ralph Hasenhuttl, knattspyrnustjóri Southampton, var ekki á hliðarlínunni í 0-0 jafntefli gegn West Ham á dögunum þar sem hann var í sóttkví. Hann mætir aftur á morgun.
Athugasemdir
banner