Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 03. febrúar 2020 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bergwijn: Að skora í fyrsta leiknum er ótrúlegt
Steven Bergwijn.
Steven Bergwijn.
Mynd: Getty Images
Hollendingurinn Steven Bergwijn þreytti frumraun sína með Tottenham í í 2-0 sigri á Manchester City í gær.

Bergwijn er 23 ára gamall kantmaður sem var keyptur til Tottenham frá PSV Eindhoven á síðustu dögum janúargluggans.

„Þetta er ótrúlegt - draumur að rætast að skora í fyrsta leiknum mínum," sagði Bergwijn við Sky Sports.

„Ég er svo ánægður að vera hérna og að gera mark. Þegar ég var yngri þá langaði mér að vera hérna að spila í ensku úrvalsdeildinni. Að skora í fyrsta leiknum er ótrúlegt."

Bergwijn var valinn maður leiksins af Sky Sports. Mark hans má sjá hérna. Afar laglegt mark.
Athugasemdir
banner
banner
banner