Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 03. mars 2020 11:58
Elvar Geir Magnússon
Æfingaferðin fer vel af stað - Leikur á morgun
Frá æfingu á Spáni.
Frá æfingu á Spáni.
Mynd: KSÍ
A-landslið kvenna mætir Norður Írlandi á morgun, miðvikudag, í fyrsta leik liðsins á Pinatar Cup æfingamótinu á Spáni. Leikurinn hefst kl. 14:00 að íslenskum tíma.

Leikurinn fer fram á Pinatar Arena og verður í beinni útsendingu á Youtube rás KSÍ.

Annar leikur í mótinu verður svo klukkan 18:00 þegar Skotland og Úkraína mætast.

„Ferðin hefur farið vel af stað og var fyrsti æfingadagur á mánudag þar sem leikmennirnir fóru í gegnum ýmis hlaupa- og stökkpróf," segir á heimasíðu KSÍ.

Sjá einnig:
Svona er landsliðshópurinn

Ísland mætir svo Skotlandi á laugardag og Úkraínu á þriðjudag en hér að neðan má sjá viðtal við Jón Þór Hauksson landsliðsþjálfara sem tekið var þegar hópurinn var opinberaður.
Jón Þór: Græt mig ekki í svefn
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner