Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 03. mars 2020 17:00
Magnús Már Einarsson
Aguero klár á morgun og í Manchester slaginn
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola, stjóri Manchester City, hefur staðfest að Sergio Aguero sé klár í slaginn fyrir leikinn gegn Sheffield Wednesday í enska bikarnum á morgun.

Aguero fór meiddur af velli í úrslitaleik enska deildabikarsins um síðustu helgi þar sem City vann Aston Villa.

Guardiola staðfesti í dag að Aguero verði með á morgun sem og gegn Manchester United á sunnudaginn.

Claudio Bravo mun halda sæti sínu í marki City í bikarleiknum annað kvöld en Guardiola staðfesti þetta í dag.
Athugasemdir
banner
banner