Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 03. mars 2020 18:51
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Chelsea og Liverpool: Salah og Firmino á bekknum
Mynd: Getty Images
Chelsea tekur á móti Liverpool í 16-liða úrslitum enska bikarsins í kvöld. Leikurinn hefst eftir klukkustund og hafa byrjunarlið beggja liða verið staðfest.

Báðir stjórar tefla fram sterkum byrjunarliðum en gefa ungum leikmönnum tækifæri.

Frank Lampard gefur Billy Gilmour tækifæri á miðjunni á meðan Jürgen Klopp er með Neco Williams og Curtis Jones í byrjunarliðinu.

Kepa Arrizabalaga, Kurt Zouma, Pedro og Ross Barkley fá einnig tækifæri í liði heimamanna á meðan Adrian, Takumi Minamino og Mohamed Salah koma inn í byrjunarlið gestanna.

Chelsea: Kepa, Azpilicueta, Rüdiger, Zouma, Alonso, Gilmour, Kovacic, Barkley, Willian, Giroud, Pedro
Varamenn: Caballero, Tomori, James, Jorginho, Mount, Anjorin, Batshuayi.

Liverpool: Adrian, Williams, Van Dijk, Gomez, Robertson, Fabinho, Lallana, Jones, Minamino, Mane, Origi
Varamenn: Lonergan, Milner, Matip, Chirivella, Oxlade-Chamberlain, Salah, Firmino


Athugasemdir
banner
banner
banner