Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   þri 03. mars 2020 10:00
Magnús Már Einarsson
Damir og Karl Friðleifur framlengja við Breiðablik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnarmaðurinn öflugi Damir Muminovic hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Breiðablkk.

„Gleðifréttir fyrir félagið enda Damir einn af bestu varnarmönnum Pepsi Max," segir Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari Breiðabliks.

Hinn 29 ára gamli Damir hefur skorað sjö mörk í 207 leikjum með Breiðabliki síðan hún kom til félagsins árið 2014.

Karl Friðleifur Gunnarsson hefur einnig skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Breiðablik.

Karl Friðleifur á fjórtán mótsleiki að baki með Blikum. Hann hefur verið fastamaður í yngri landsliðum Íslands og á að baki 27 unglingalandsleiki og hefur skorað í þeim sjö mörk.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner