Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 03. mars 2020 22:49
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Chelsea og Liverpool: Minamino og Fabinho verstir
Barkley og Gilmour bestir
Mynd: Getty Images
Chelsea sló Liverpool úr leik í enska bikarnum fyrr í kvöld þar sem miðjumaðurinn ungi Billy Gilmour átti frábæran leik.

BBC gaf Gilmour nafnbótina besti leikmaður vallarins en við styðjum okkur við einkunnagjöf Sky Sports, þar sem Ross Barkley var krýndur besti maður vallarins.

Barkley fær 8 í einkunn hjá Sky og var því bestur á vellinum ásamt Gilmour. Restin af liði Chelsea fékk 7 fyrir sinn þátt, að undanskildum Mateo Kovacic og Jorginho.

Í liði Liverpool fengu allir undir 6 í einkunn nema tveir, hægri bakvörðurinn ungi Neco Williams og senegalska stórstjarnan Sadio Mane.

Takumi Minamino og Fabinho þóttu verstir og fengu 4 í einkunn.

Chelsea: Kepa (7), Azpilicueta (7), Rudiger (7), Zouma (7), Alonso (7), Kovacic (6), Gilmour (8), Barkley (8), Willian (7), Pedro (7), Giroud (7)
Varamenn: Mount (7), Jorginho (6)

Liverpool: Adrian (5), Williams (6), Van Dijk (5), Gomez (5), Robertson (5), Fabinho (4), Lallana (5), Jones (5), Minamino (4), Origi (5), Mane (6)
Athugasemdir
banner
banner