Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 03. mars 2020 22:29
Ívan Guðjón Baldursson
Enski bikarinn: Billy Sharp skaut Sheffield áfram
Mynd: Getty Images
Reading 1 - 2 Sheffield Utd
0-1 David McGoldrick ('2)
1-1 George Puscas ('43, víti)
1-2 Billy Sharp ('105)

Reading tók á móti Sheffield United í miklum baráttuleik í 16-liða úrslitum enska bikarsins í kvöld.

David McGoldrick kom gestunum yfir snemma leiks eftir fyrirgjöf frá Ben Osborn á vinstri vængnum.

Fyrri hálfleikurinn var jafn og náðu heimamenn að jafna með marki úr vítaspyrnu á 43. mínútu. George Puscas skoraði örugglega af punktinum.

Seinni hálfleikurinn var í járnum og þurfti að grípa til framlengingar. Varamaðurinn vinsæli Billy Sharp lét þá til sín taka og skoraði í uppbótartíma fyrri hálfleiks.

Heimamönnum tókst ekki að jafna þrátt fyrir góðar tilraunir á síðasta stundarfjórðungnum og er Sheffield United komið áfram í næstu umferð.

Liðin sem eru komin áfram:
Arsenal
Chelsea
Newcastle
Sheffield United
Athugasemdir
banner
banner
banner