Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 03. mars 2020 19:40
Ívan Guðjón Baldursson
Ronaldo hughreystir aðdáendur og biður um næði
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo flaug til Madeira í Portúgal í morgun eftir að móðir hans fékk heilablóðfall og var flutt á spítala.

Skilaboðum hefur rignt yfir Ronaldo og starfsteymi hans vegna fregnanna og birti hann færslur á samfélagsmiðlum til að hughreysta aðdáendur sína.

„Takk fyrir allar batakveðjurnar til mömmu. Ástand hennar er stöðugt," skrifaði Ronaldo.

„Ég og fjölskylda mín viljum senda sérstakar þakkir til læknateymisins sem annast hana og viljum vinsamlegast biðja um smá næði."


Athugasemdir
banner
banner