Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 03. mars 2020 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu magnaða móttöku Foden í úrslitaleiknum
Mynd: Getty Images
Phil Foden fékk tækifæri með byrjunarliði Manchester City í úrslitaleik deildabikarsins gegn Aston Villa um helgina.

Man City stóð uppi sem sigurvegari og átti Foden mjög góðan leik. Ungstirnið, sem lagði fyrsta mark leiksins upp fyrir Sergio Aguero, hefur fengið mikið lof fyrir frammistöðuna.

Josep Guardiola hefur miklar mætur á Foden en hefur gefið honum afar takmarkaðan spiltíma. Foden verður tvítugur í maí og er búist við að hann fái stærra hlutverk í liði City á næstu leiktíð.

Foden hefur litið vel út þegar hann hefur fengið tækifæri og hafa gæði hans vakið athygli. Það var eitt atvik úr sigrinum gegn Aston Villa sem vakti sérstaklega mikla athygli, þegar Foden tók við langri sendingu frá Oleksandr Zinchenko.

Myndband af atvikinu má sjá hér fyrir neðan.

Athugasemdir
banner
banner
banner