Heiðar Helguson spilaði í heildina 226 keppnisleiki fyrir Watford og skoraði í þeim 76 mörk.
Hann er goðsögn hjá félaginu en á sínu besta tímabili gerði hann 20 mörk í 46 leikjum er Watford var í toppbaráttu Championship deildarinnar 2005.
Heiðar var mættur á Vicarage Road um helgina þegar Watford tók á móti toppliði Liverpool og vann sögulegan 3-0 sigur.
Heiðar fékk mjög góðar móttökur á sínum gamla heimavelli og er hægt að sjá viðbrögð stuðningsmanna í myndskeiði hér fyrir neðan.
Athugasemdir