Schalke 0 - 1 Bayern
0-1 Joshua Kimmich ('40)
0-1 Joshua Kimmich ('40)
Joshua Kimmich gerði eina mark leiksins er FC Bayern tryggði sér sæti í undanúrslitum þýska bikarsins í kvöld.
Bayern heimsótti Schalke og úr varð hörkuleikur þar sem heimamenn komust nálægt því að skora en tókst ekki.
Gestirnir frá München voru betri í leiknum en áttu í miklum erfiðleikum með að finna glufur á skipulagðri vörn heimamanna.
Kimmich skoraði með laglegu skoti á 40. mínútu þegar boltinn barst til hans við vítateigslínuna eftir hornspyrnu.
Heimamenn áttu ekkert svar og lokatölur 0-1 fyrir Bayern, sem er annað liðið til að komast í undanúrslitin eftir að D-deildarlið Saarbrücken sló Fortuna Düsseldorf óvænt úr leik fyrr í kvöld.
Athugasemdir