U23 ára lið Fulham lagði Southend, 3-2, í æfingaleik á Boots & Laces vellinum í gær.
Selfyssingurinn Þorsteinn Aron Antonsson skoraði eitt marka Fulham með skalla.
Southend leiddi 0-2 í hálfleik en Fulham sneri taflinu við með mörkum frá Terry Ablade og marki frá Þorsteini.
Selfyssingurinn Þorsteinn Aron Antonsson skoraði eitt marka Fulham með skalla.
Southend leiddi 0-2 í hálfleik en Fulham sneri taflinu við með mörkum frá Terry Ablade og marki frá Þorsteini.
Markið kom á 75. mínútu, Fulham tók stutt horn, Sylvester Jasper kom sér inn á teiginn og fann Þorstein á fjærstönginni sem skoraði með flugskalla, skallaði niður í vinstra markhornið.
Þorsteinn, sem er sautján ára, kom inn á í seinni hálfleik sem varamaður.
Sjá einnig:
Hin hliðin - Þorsteinn Aron Antonsson
Upplifir drauminn hjá Fulham - „Markmiðið að spila með U23 í vetur"
Athugasemdir