Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mið 03. maí 2017 10:24
Elvar Geir Magnússon
Yfirlýsing frá Tindastóli: Gerum það sem við getum til að aðstoða Ragnar
Heimavöllur Tindastóls á Sauðárkróki.
Heimavöllur Tindastóls á Sauðárkróki.
Mynd: Aðsend
Stjórn knattspyrnudeildar Tindastóls hefur sent Fótbolta.net yfirlýsingu vegna fréttar sem birtist á vefnum í gær.

Yfirlýsing frá stjórn knattspyrnudeildar Tindastóls
Vegna fréttaflutnings fotbolti.net um leikmann Tindastóls, Ragnar Þór Gunnarsson, vill stjórn knattspyrnudeildar Tindastóls koma eftirfarandi á framfæri.

Á þeim tíma sem umrædd brot fóru fram var Ragnar Þór ekki leikmaður Tindastóls og hörmum við framferði leikmannsins á þeim tíma. Ragnar Þór nýtur stuðnings og trausts knattspyrnudeildar Tindastóls og munum við gera það sem við getum til að aðstoða hann í framhaldinu. Nú er það undir honum komið að halda áfram með líf sitt og læra af þeim mistökum sem gerð voru.

Ragnar Þór er ungur maður sem er að stíga sín fyrstu spor sem fullorðinn einstaklingur í samfélaginu og gerðist sekur um dómgreindarbrest og hefur nú fengið sinn dóm fyrir það.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner