Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   sun 03. maí 2020 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Jill Scott: Phil Neville verður sárt saknað
Mynd: Getty Images
Jill Scott, miðjumaður Manchester City og enska kvennalandsliðsins, hefur miklar mætur á landsliðsþjálfara sínum Phil Neville sem hættir störfum þegar samningurinn rennur út næsta sumar.

Neville átti að stýra enska landsliðinu á EM 2021 og ætlaði að hætta eftir mótið en því hefur verið frestað um eitt ár. Neville tilkynnti í síðasta mánuði að hann hyggðist ekki framlengja samning sinn við kvennalandsliðið, honum leiðist starfið og vill taka við félagsliði næst.

Hin 33 ára Jill Scott var mikilvægur hlekkur í liði Neville sem komst alla leið í undanúrslit á HM í fyrra.

„Hann hafði virkilega góð áhrif á hópinn og mig persónulega. Hann skilur hvað það er að vera eldri leikmaður, hann er góður að hvetja mann áfram og láta mann trúa að maður eigi ennþá bensín í tankinum. Þegar maður kemur á ákveðinn aldur byrjar fólk að tala um að leggja skóna á hilluna en ekki Phil, hann sagði alltaf 'Koma svo Jill, tvö ár í viðbót'," sagði Scott.

„Phil verður sárt saknað en við óskum honum alls hins besta í framtíðinni. Hann á eftir að gera góða hluti hvert sem hann fer."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner