Sóknarmaðurinn Andri Freyr Jónasson sneri aftur á sinn gamla heimavöll í kvöld þegar Afturelding mætti Fjölni.
Andri er uppalinn í Aftureldingu en hann gekk í raðir Fjölnis fyrir þetta tímabil.
Andri er uppalinn í Aftureldingu en hann gekk í raðir Fjölnis fyrir þetta tímabil.
Lestu um leikinn: Afturelding 2 - 2 Fjölnir
„Það var mjög gaman að koma hingað og spila aftur á Varmárvelli. Það var gaman að sjá riddarasveitina syngja og tralla í stúkunni," sagði Andri Freyr.
Leikinn sjálfan, hann var svekktur með hann. Lokaniðurstaðan var 2-2 jafntefli þar sem Fjölnir skoraði tvö undir lokin.
„Ég hefði viljað gera betur en allt í lagi að fá stig úr því sem komið var."
„Við vorum að reyna og reyna allan leikinn. Þeir stóðu sig vel, ekki spurning. Það var gott að ná tveimur mörkum í restina og bjarga stigi alla vega."
Allt viðtalið má sjá að ofan.
Athugasemdir