Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   fim 03. júní 2021 11:21
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Bjarki Steinn: Fáránlega sætt, þetta var bara snilld
Icelandair
Bjarki Steinn Bjarkason
Bjarki Steinn Bjarkason
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Af landsliðsæfingu í dag
Af landsliðsæfingu í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bjarki Steinn Bjarkason hefur æft með U21 árs landsliðinu í þessari viku. U21 hópurinn er í undirbúningi fyrir undankeppni EM sem hefst í haust.

Bjarki er leikmaður Venezia á Ítalíu sem fór upp úr Serie B eftir umspil í maí. Á komandi leiktíð leikur liðið því í deild þeirra bestu. Bjarki gekk í raðir Venezia frá ÍA síðasta haust. Fótbolti.net ræddi við Bjarka fyrir æfingu landsliðsins í dag.

„Það er mjög góð tilfinning að vera kominn heim til Íslands. Alltaf gott að koma hérna, hitta strákana og spila bolta með þeim eftir gott tímabil úti."

Ertu sáttur við tímabilið úti?

„Já, persónulega er ég þokkalega sáttur, maður vill samt alltaf meira svo sem. Til að byrja með var ég að koma mér mjög vel inn í hlutina og kannski framar vonum. Svo fékk ég covid í janúar og það var smá skref aftur á bak en í heild var þetta þokkalegt."

Urðu einhver eftirköst eftir að hafa fengið veiruna, hvernig ertu í dag?

„Ég er mjög góður í dag, ég fann voða lítið fyrir þessu. Þetta var langt ferli og erfitt að komast inn í liðið eftir á en ég er ferskur í dag."

Venezia verður í Serie A á næsta tímabili.

„Það var heldur betur krydd ofan á gott tímabil. Það var mjög sætt í lokin að komast upp eftir alla þessa leiki í umspilinu. Það var svakaleg stemning í hópnum og við kláruðum þetta vel sem var geðveikt, geðveik tilfinning."

Venezia fór upp á eftir mark á 93. mínútu. Hvernig var að sjá það mark?

„Það var fáránlega sætt. Við fögnuðum þessu rosalega vel og þetta var bara snilld," sagði Bjarki.

Nánar var rætt við Bjarka og má sjá það í spilaranum hér að ofan
Athugasemdir
banner