Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   fim 03. júní 2021 22:35
Sverrir Örn Einarsson
Bjössi Hreiðars: Þú veist ekkert hvað gerist
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Heldur betur að vinna í þessu.“
Sagði Sigurbjörn Hreiðarsson þjálfari Grindavíkur um hvort hann væri ekki sáttur með stigin þrjú eftir sigur á Selfyssingum í miklum rokleik á Grindavíkurvelli fyrr í kvöld. Sigurbjörn hélt síðan áfram,

Lestu um leikinn: Grindavík 1 -  0 Selfoss

„Þetta eru bara tveir leikir. Það er fyrri hálfleikur með vindi og svo á móti. Þú veist ekkert hvað gerist, boltarnir detta hérna og fara í loftið og það er bara að harka þetta og reyna að fá eitthvað út úr sénsunum sem við fáum.“

Grindvíkingar lögðu fram beiðni um að leiknum yrði frestað þar sem veðurspá fyrir leikinn var slæm en Selfyssingar hafi hafnað þeirri ósk þeirra og því hafi leikurinn farið fram. Um þetta sagði Sigurbjörn.

„Við vildum færa leikinn og spila hann við boðlegar aðstæður. En það verða allir að vera sammála því og það var ekki þannig en vip spilum þá bara leikinn. Ég hef nú samt verið í verri aðstæðum en þetta þannig að við ætlum ekki að væla yfir því. Við bara mætum ef við eigum að spila og gerum það. “

Undir lok leiks varð smá hasar við varamannabekk Grindavíkur þar sem meðal annar rautt spjald fór á loft. Hvað gekk þar á?

„Það var einn frá þeim sem var mjög ósáttur við að við skyldum ekki láta boltann vera og veður hérna inn í okkar boðvang. Sá ágæti maður hann komst ekki óáreittur til baka. Menn voru ekki ánægðir með það gerðist eitthvað sem ég veit ekki hvað var. “

Sagði Sigurbjörn en allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner