Ashley Cole, fyrrum leikmaður Chelsea, segir félaginu að reyna við Romelu Lukaku í sumarglugganum.
Það er ef Lukaku er falur fyrir rétt verð en Inter Milan er í fjárhagsvandræðum og gæti þurft að selja Belgann í sumar.
Lukaku var afar mikilvægur fyrir Inter í vetur en liðið vann deildina undir Antonio Conte sem lét síðar af störfum.
Timo Werner er aðal framherji Chelsea í dag en hann stóðst ekki væntingar á sínu fyrsta tímabili á Englandi.
Lukaku er sjálfur fyrrum leikmaður Chelsea en hann fékk fá tækifæri á Stamford Bridge á sínum tíma. Hann gaf það þó út í gær að hann væri ekki á förum.
„Ég tel Werner vera gæðaleikmann sem Chelsea þarf á að halda en ef Lukaku er laus fyrir rétt verð ættu þeir að taka hann," sagði Cole.
„Hann er einn af bestu framherjunum og öll lið munu vilja styrkja sig á árinu. Til að vinna titla þá þarftu möguleika og mismunandi leikmenn."
Athugasemdir