Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 03. júní 2021 13:00
Ívan Guðjón Baldursson
Donnarumma á leið til PSG - Lánaður til Atalanta?
Mynd: Getty Images
Ítalskir fjölmiðlar greina frá því að markvörðurinn Gianluigi Donnarumma sé búinn að skrifa undir samning við Paris Saint-Germain.

Donnarumma mun þó ekki spila fyrir franska stórveldið fyrr en á næsta ári, hann verður lánaður aftur í ítalska boltann í eitt ár og er orðaður við markmannsstöðuna hjá Atalanta.

Donnarumma er 22 ára gamall og skiptir um félag á frjálsri sölu eftir að samningur hans við AC Milan rann út.

Donnarumma þykir einn af bestu markvörðum heims og er aðalmarkvörður ítalska landsliðsins. Hann á 25 leiki að baki fyrir A-landsliðið þrátt fyrir ungan aldur.

Keylor Navas er aðalmarkvörður PSG. Sergio Rico er varamarkvörður.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner