Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 03. júní 2021 17:53
Ívan Guðjón Baldursson
EM U21: Portúgal lagði Spán í undanúrslitum
Mynd: EPA
Spánn 0 - 1 Portúgal
0-1 Jorge Cuenca ('80, sjálfsmark)

Portúgal er komið í úrslitaleik Evrópumóts U21 landsliða eftir sigur á nágrönnum sínum frá Spáni í dag.

Spánverjar stjórnuðu gangi mála og voru með yfirhöndina frá fyrstu mínútu en gekk illa að koma knettinum í netið.

Portúgalir áttu sínar rispar og fengu færi en inn vildi boltinn ekki fyrr en undir lokin, þegar Jorge Cuenca leikmaður Almeria varð fyrir því óláni að setja knöttinn í eigið net.

Það reyndist eina mark leiksins og mun Portúgal mæta annað hvort Hollandi eða Þýskalandi í úrslitum. Suður-Evrópa gegn Norður-Evrópu.
Athugasemdir
banner
banner