Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fim 03. júní 2021 16:51
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Glódís enn og aftur í liði vikunnar - „Guð minn góður"
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsmiðvörðurinn Glódís Perla Viggósdóttir er svo sannarlega að eiga stórkostlegt tímabil með Rosengård í Svíþjóð.

Rosengård hefur unnið alla leiki sína í sænsku úrvalsdeildinni til þessa og er - eins og gefur að skilja - á toppnum.

Glódís hefur spilað stórt hlutverk í hjarta varnarinnar þar sem Rosengård hefur aðeins fengið á sig eitt mark í fyrstu sjö leikjunum. Hún er í liði vikunnar hjá Aftonbladet í þriðja sinn; hún er komin með fasta áskrift í liðið.

„Þetta er farið að vera pirrandi, en guð minn góður hvað hún er góður miðvörður... hún á nánast skilið að vera í liði vikunnar í hverri viku," segir um Glódísi.

Það er einnig sagt að það hafi ekki verið mikið að gera hjá henni gegn AIK en allt það sem hún hafi gert, það hafi hún gert vel.

Sjá einnig:
„Mikið erum við heppin að hafa hana að spila fyrir Íslands hönd"
Athugasemdir
banner
banner
banner