Gary Lineker, fyrrum leikmaður Tottenham, telur að þrjú lið geti barist um Harry Kane í sumarglugganum.
Kane er líklega á förum frá Tottenham í sumar en hann vill vinna titla og er ekki að afreka það hjá félaginu.
Lineker telur líklegast að Kane fari til Manchester en Manchester City leitar að framherja þessa stundina.
„Það yrði áhyggjuefni að sjá hann taka yfir deildina ef hann semur við Manchester City," sagði Lineker.
„Ég myndi elska að sjá hann hjá Barcelona en þeir fengu Sergio Aguero og eru blankir þessa stundina."
„Ég held að þetta sé á milli Manchester City, Manchester United og kannski PSG."
Athugasemdir