Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 03. júní 2021 11:41
Ívan Guðjón Baldursson
Lucas Vazquez búinn að skrifa undir hjá Real Madrid
Mynd: Getty Images
Lucas Vazquez er búinn að skrifa undir nýjan samning við Real Madrid sem gildir í þrjú ár.

Lucas Vazquez er 29 ára gamall og byrjaði ferilinn sem kantmaður en hefur aðallega verið notaður sem bakvörður undanfarin ár.

Samningur Vazquez átti að renna út í sumar en hann náði samkomulagi við stjórn Real Madrid um nýjan samning.

Vazquez hefur spilað 240 leiki á sex árum hjá stórveldinu og unnið fimm mismunandi keppnir með félaginu. Hann á 9 leiki að baki fyrir spænska landsliðið.

Real Madrid staðfesti þetta fyrir skömmu en Ítalinn Carlo Ancelotti var að taka við félaginu í annað sinn á ferlinum.
Athugasemdir
banner
banner
banner