Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 03. júní 2021 12:30
Victor Pálsson
Mbappe: Haaland er rétt að byrja
Mynd: EPA
Kylian Mbappe, leikmaður PSG og Frakklands, vill ekki að fólk sé að bera hann saman við norska undrabarnið Erling Haaland.

Haaland er gríðarlega efnilegur leikmaður og þrátt fyrir að vera aðeins 20 ára er hann mikilvægasti leikmaður Dortmund.

Mbappe þekkir það vel að vera undrabarn en hann er 22 ára gamall í dag og vakti fyrst athygli sem táningur.

Blaðamaður spurði Mbappe út í hvort þeir félagar hefðu eitthvað sameiginlegt en hann gaf lítið fyrir þá spurningu.

„Þetta er aðeins hans annað ár og við erum að kynnast honum," sagði Mbappe við GQ Magazine.

„Hann er bara að byrja. Ég er ánægður fyrir hans hönd, hvað hann er að afreka."
Athugasemdir
banner
banner