Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 03. júní 2021 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Strákarnir ánægðir að fá Hemma inn: Alltaf eitthvað að rugla í manni
Icelandair
Ísak Snær og Hermann náðu vel saman
Ísak Snær og Hermann náðu vel saman
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hermann Hreiðarsson var tilkynntur sem aðstoðarþjálfari U21 árs landsliðsins í maí. Hemmi lék 89 landsleiki á sínum ferli og í fimmtán ár sem atvinnumaður á Englandi.

Þeir Bjarki Steinn Bjarkason og Jökull Andrésson, leikmenn U21 liðsins, voru spurðir út í Hemma í viðtölum fyrir æfinguna í dag. Þau viðtöl má sjá í heild sinni hér að neðan.

„Það vita allir hvernig Hemmi er. Hann kemur með alvöru aggression inn í þetta og ég er mjög spenntur að heyra hvað hann hefur að segja," sagði Bjarki.

Jökull var spurður hvort Hemmi hefði eitthvað verið að rugla í sér.

„Hann er alltaf eitthvað að rugla í manni. Það er svo æðislegt að hafa hann hérna, svo gott að hafa einn sem þekkir þetta allt. Hann sjálfur spilaði í neðri deildunum á Englandi og ég get ekki beðið eftir að spyrja hann fullt af spurningum út í það allt. Það er æðislegt að hafa svona meistara með okkur," sagði Jökull.
Bjarki Steinn: Fáránlega sætt, þetta var bara snilld
Jökull: Voru kindur fyrir utan bústaðinn en mér var alveg sama
Athugasemdir
banner
banner
banner