Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 03. júní 2021 07:00
Victor Pálsson
Tierney elskar að vinna með Arteta
Mynd: Getty Images
Kieran Tierney, leikmaður Arsenal, elskar að vinna fyrir Mikel Arteta sem er stjóri enska félagsins í dag.

Arteta hefur ekki alveg staðist væntingar í stjórastólnum á Emirates en liðið hafnaði í áttunda sæti deildarinnar á tímabilinu og datt úr leik í undanúrslitum Evrópudeildarinnar.

Tierney er þó gríðarlega ánægður með Spánverjann og segist vera betri leikmaður í dag vegna hans.

Tierney er aðeins 23 ára gamall en er orðinn lykilmaður í Arsenal eftir að hafa komið frá Celtic árið 2019.

„Ég hlusta á allt sem stjórinn segir við mig, hvert einasta orð," sagði Tierney í samtali við Sun.

„Ég elska að vinna fyrir hann, hann hefur hjálpað mér gríðarlega mikið. Það er hægt að sjá mun á mínum leik síðustu 18 mánuðina og það er honum og þjálfarateyminu að þakka."

„Ég hef fylgt þeirra ráðum á hverjum degi. Ég er þakklátur fyrir það sem hann hefur gert fyrir mig."
Athugasemdir
banner
banner