Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 03. júní 2021 05:55
Elvar Geir Magnússon
Undanúrslit EM U21 fara fram í dag - Dramatíkin heldur áfram
Spánverjar unnu Króata í framlengingu.
Spánverjar unnu Króata í framlengingu.
Mynd: Getty Images
Flautumörk, glæsimörk, dramatík, tár, bros og takkaskór einkenndu 8-liða úrslit Evrópumóts U21 landsliða sem klárast í Ungverjalandi og Slóveníu á sunnudaginn.

Hér má lesa um fjörið sem átti sér stað í leikjunum í 8-liða úrslitum keppninnar.

Leikið verður til undanúrslita í dag en leikirnir verða sýndir beint á RÚV og RÚV 2.

Undanúrslitin
16:00 Spánn - Portúgal (Maribor í Slóveníu)
19:00 Holland - Þýskaland (Fehérvár í Ungverjalandi)

Úrslitaleikurinn verður síðan á dagskrá næsta sunnudag klukkan 19:00 en hann verður leikinn í hinni fallegu borg Lúbljana í Slóveníu.
Athugasemdir
banner