Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 03. júní 2022 23:41
Ívan Guðjón Baldursson
4. deild: Auðvelt fyrir Árborg - Markalaust á Eskifirði
Mynd: Árborg

Það fóru tveir leikir fram í 4. deildinni í kvöld þar sem Árborg sigraði Hafnir með þremur mörkum gegn engu á meðan Boltafélag Norðfjarðar gerði markalaust jafntefli við Samherja.


Andrés Karl Guðjónsson skoraði tvennu fyrir Árborg og gerði Ingi Rafn Ingibergsson þriðja markið. Árborg er komið með sex stig eftir þrjár umferðir á meðan Hafnir eru með þrjú stig.

Boltafélaginu tókst ekki að skora þegar Samherjar kíktu í heimsókn á Eskifjörð. Bæði lið eru með fjögur stig eftir fjórar umferðir.

Árborg 3 - 0 Hafnir
1-0 Andrés Karl Guðjónsson ('10)
2-0 Andrés Karl Guðjónsson ('45)
3-0 Ingi Rafn Ingibergsson ('61)

Boltafélag Norðfjarðar 0 - 0 Samherjar


4. deild karla - C-riðill
Lið L U J T Mörk mun Stig
4. deild karla - E-riðill
Lið L U J T Mörk mun Stig
Athugasemdir
banner
banner
banner