Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 03. júní 2022 07:30
Elvar Geir Magnússon
Cavani funheitur gegn Mexíkó
Edinson Cavani.
Edinson Cavani.
Mynd: EPA
Úrúgvæ vann 3-0 sigur gegn Mexíkó í vináttulandsleik sem fram fór í Arizona. Edinson Cavani var funheitur í leiknum.

Hann átti skalla í fyrri hálfleik sem var varinn en Matias Vecino, leikmaður Inter, hirti frákastið og skoraði fyrsta mark leiksins.

Í seinni hálfleik skoraði Cavani svo tvívegis, fyrra mark hans var eftir frábæran undirbúning frá hinum tvítuga Facundo Pellistri sem er í eigu Manchester United en lék á láni hjá Alaves á liðnu tímabili.

Hinn 35 ára gamli Cavani er samningslaus eftir tvö ár hjá Manchester United í enska boltanum.

Þá vann Ekvador 1-0 sigur gegn Nígeríu í vináttulandsleik. Pervis Estupinan, leikmaður Villarreal, skoraði eina mark leiksins.


Athugasemdir
banner
banner