banner
   fös 03. júní 2022 12:02
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gummi Tóta aftur til Norrköping?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í gær var greint frá því að Guðmundur Þórarinsson fengi ekki nýjan samning hjá AaB en samningurinn hans er að renna út.

Guðmundur gæti snúið aftur til sænska félagsins Norrköping þar sem hann spilaði á árunum 2017-19.

Tony Martinsson, yfirmaður íþróttamála hjá Norrköping, svaraði fyrirspurn sænska miðilsins NT-Sporten varðandi Guðmund.

„Hann er einn af fyrrum leikmönnum okkar sem við fylgjumst með. Meira en það get ég ekki sagt," svaraði Tony.

Guðmundur gekk í raðir AaB snemma á þessu ári eftir tvö tímabil með New York City í Bandaríkjunum. Hann spilaði sex leiki með AaB og var einungis einu sinni í sigurliði þegar liðið endaði í fimmta sæti deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner