Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
banner
   fös 03. júní 2022 12:00
Elvar Geir Magnússon
Lacazette kveður Arsenal
Lacazette snýr aftur til Lyon.
Lacazette snýr aftur til Lyon.
Mynd: Getty Images
Arsenal hefur staðfest að sóknarmaðurinn Alexandre Lacazette muni yfirgefa félagið þegar samningur hans rennur út næstu mánaðamót.

Búist er við því að Lacazette semji aftur við Lyon en hann kom til Arsenal frá félaginu 2017.

Lacazette lék 206 leiki fyrir Arsenal og skoraði 71 mark. Þessi 31 árs leikmaður var markakóngur félagsins í tvö tímabil.

Hann var valinn leikmaður tímabilsins hjá Arsenal 2018/19 og vann FA bikarinn með félaginu 2020.

„Laca hefur verið stórkostlegur leikmaður fyrir okkur. Hann hefur verið sannur leiðtogi innan sem utan vallar og haft mikil áhrif á yngri leikmenn félagsins," segir Mikel Arteta, stjóri Arsenal


Athugasemdir
banner
banner
banner