Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   fös 03. júní 2022 22:23
Ingi Snær Karlsson
Sigurvin: Eigum að fá allavega tvær vítaspyrnur
Lengjudeildin
Sigurvin Ólafsson, þjálfari KV
Sigurvin Ólafsson, þjálfari KV
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér fannst hann bara mjög jafn leikur og mjög svekktur að fá ekkert út úr honum." sagði Sigurvin eftir 3-1 tap gegn Fjölni í 5. umferð Lengjudeild karla í kvöld.

Lestu um leikinn: Fjölnir 3 -  1 KV

Hvernig lögðuð þið leikinn upp?

„Svo sem eins og alltaf bara, þetta er á grasi og við erum ekki búnir að spila mikið á grasi þannig að ná aðeins áttum á því. Finna bara baráttuna og spilið kæmi svo í kjölfarið og þessi leikur er bara í jafnvægi eiginlega allan tímann. Þeir auðvitað í nauðvörn hérna í lokin. Það lak inn tvisvar hjá þeim en bara einu sinni hjá okkur."

Hvað fannst þér um öll vafaatriðin í lok leiks?

„Mér fannst auðvitað margt mjög skrítið. Ég held að við eigum að fá allavega tvær vítaspyrnur, allavega eina þegar boltinn fer klárlega í hendina á varnarmanninum, ekki í náttúrulegri stöðu. En það virðist vera eitthvað auðvelt að sleppa hjá okkur, litla KV. Það er mjög auðvelt að sleppa þar. Svo á Steini skot í teig, búinn að skjóta þá er einhver sem rennir sér í löppina á honum og sparkar í hann. Eitthvað sem við fengum gult spjald fyrir í fyrri hálfleik út á miðjum velli. En inn í teig virðist það ekki vera vítaspyrna að þessu sinni."

KV eru ennþá stigalausir eftir fimm leiki og aðspurður hvort hann hafi búist við svona erfiðri byrjun, hafði hann þetta að segja:
„Ég bjóst alveg við því að hún yrði erfið, búnir með fjóra útileiki og bara einn heima og á móti sterkum liðum. En þetta eru svo sem allt sterk lið og að sjálfsögðu var ekki í dagatalinu að sjá fyrir sér núll stig eftir fimm umferðir. En ég meina, eins fáranlegt og það er þá hef ég ekkert stórkostlegar áhyggjur. Í dag erum við að spila á útivelli við Fjölni og í versta falli ætti hann að fara jafntefli. En við töpuðum."

Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan
Athugasemdir
banner
banner