Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 03. júní 2022 18:40
Ívan Guðjón Baldursson
Slonina búinn að velja Real Madrid
Mynd: Getty Images

Gabriel Slonina, einn af efnilegustu markvörðum heims, virðist vera á leið til Real Madrid eftir ummæli umboðsmanns hans.


Slonina hefur verið eftirsóttur af stærstu félögum Evrópu en hann er byrjunarliðsmarkvörður Chicago Fire í MLS deildinni þrátt fyrir að vera aðeins nýorðinn 18 ára gamall.

„Við vonum að Chicago komist að samkomulagi við Real Madrid vegna þess að það er draumur Gabriel að spila fyrir félagið," sagði Jaime Garcia umboðsmaður Slonina.

„Með fullri virðingu fyrir tilboðum annarra félaga þá er ekki hægt að segja nei við Real Madrid."

Chelsea hefur verið á höttunum eftir Slonina og fleiri stórlið orðuð við hann en ákvörðunin var tekin um leið og Real Madrid sýndi áhuga.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner